bloggleysi

09. febrúar 2007 klukkan 09:06
well well

ég er bara búin að vera veik í marga marga daga hita og streptokokka Gráta og var að passa krakkana því mamma og pabbi voru á tenerif. Ég náði allavegana að smita eitthvað frá mér því Jóna varð eitthvað slæm og Árni ennþá verri hann var bara með óráði einn daginn mundi ekki neitt braut skál og ældi og lét engan vita og ég bara í góðu chilli í vinnunni...
já ég er að vinna í útilíf og það er mjög gaman skemmtilegir krakkar og svona nema ekkert svakalega mikið að gera núna þá er tíminn leeeeeeengi að líðaÓákveðinn

ég er bara góð og er að fara vinna núna þannig að þetta verður ekkert lengra
bleKoss
Ingunn Ósk Benediktsdóttir

frábær helgi

23. janúar 2007 klukkan 21:58
nú er helgin gengin í garð og meirað segja komin þriðjudagur!! ég var uppí bláfjöllum alla helgina sem var bara geggjað


þessi mynd er ekki photoshoppuð!!


ænenni ekki að skrifa meir
Ingunn Ósk Benediktsdóttir

Enginn dans á rósum

16. janúar 2007 klukkan 22:31

Elsku hálsarnir mínir, það er ekkert dans á rósum að vera í skóla eins og þið flest vitið, algjör miskilningur hjá mér... en ég er sennilega að fara vinna þangað til næsta haust náði ekki almennunni alminnilega fékk 4Hissa þannig að ég gæti samt alveg haldið áfram og tekið einhverja valáfanga en ég hugsa að það flýti ekkert fyrir mér.. sem þýðir það að ég er að fara vinna að öllum líkindum 2-3 utanlandsferðir á næstunni þannig að það er kannski bara ágætt líka að fara vinna..
 það er ekkert að rætast úr því að komast á bretti snjóar ekki nóg!!! Gráta
en það var samt alveg ógólega gaman á vélsleðanum um daginn!!! alveg fáránlegt...

æ bæ
endilega kommentið á góðar vinnur...
Ingunn Ósk Benediktsdóttir

jahúúúú

12. janúar 2007 klukkan 19:42
Þá er langþráði snjórinn minn mættur á klakan og ég ekkert smá sátt Hlæjandi veit ekki með ykkur...
það er eins gott að það fari að opna uppí bláfjöllum svo maður geti farið að bruna niður brekkurnar svo er auðvitað ekkert meira hressandi en það að detta.. ég er svo að fara prófa vélsleða í fyrsta skiptið á ævinni á morgun hef bara alltaf verið aftaná, familían ætlar að fjölmenna á morgun og leika sér eins og okkur einum er lagið Svalur ég ætla að vona að það sé svipað að keyra vélsleða eins og jet ski það er eitthvað tæki þar sem ég missi alla hræðslu og keyri allt í botni
 en Sigga það var lady Men lady men laaady men hehehe
Ingunn Ósk Benediktsdóttir

Loksins búin í prófum

10. janúar 2007 klukkan 21:39
jámm ég var að klára prófin mín í dag!!! 10. janúar takk og bless.. það er svona að fara í endurtekt ég hélt alltaf að þetta væri endur trekt skildi ekki alveg Óákveðinn var farin að sjá allt brabra liðið úr tjörninni flúgandi eins og viltar gæsir á leið í brúðkaup.. eníhú. Ingi er hættur að vinna hjá mömmu og pabba farin að vinna í mótormax, ef þið viljið kaupa ykkur vélsleða, mótorhjól eða krossara þá hringið þið í kappan knáa. Gráðugur
en ég er allavegana búin að ná einu prófi vííí kemur í ljós með almennuna djöfull verð ég sátt ef ég er búin að pakka henni....

en já þetta er svona smá blogg fyrir blogg þyrsta og Díana mín ég veit allt nei ALLT um einkirningarsótt, verð að koma því að, að þegar ég var lille var ég sko síklahrædd og varð alltaf að þvo mér um hendurnar þegar ég var búin að koma við eitthvað (ekkert grín hér á fer) hef sennilega verið að þvo mér 100 sinnum á dag mamma komin með afslátt í body shop og allt (nei lygi) og ég var að læra það að þeir sem hafa verið eða eru með fóbíu fyrir síklum eru líklegir til að fá æ já streptokokka ekki einkirningarsótt ohh dem en allavegana fékk það líka einu sinni Tala af sér og lungnabolgu og asma þetta er ábyggilega allt útaf síklafóbíu.. þannig að það sem má læra af þessari sögu er að þvo sér ekki 100 sinnum á dag Svalur

hvenær verður eiginlega hægt að fara á bretti Öskrandi

ýkt skemmtilegir kallar hér á ferð
Ingunn Saklaus OUT
Ingunn Ósk Benediktsdóttir

Halló

08. janúar 2007 klukkan 17:12

Ullandi

Ingunn Ósk Benediktsdóttir

Auglýsing

Könnun

Ertu að fara út í sumar, ef já hvert?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan